141. löggjafarþing — 3. fundur,  13. sept. 2012.

Fjárlög 2013.

1. mál
[11:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta voru svolítið margar spurningar hjá hv. þingmanni, ég veit ekki hvernig tíminn nýtist, en ég byrja á ferðaþjónustunni. Hv. þingmaður spyr hvort vinnubrögðin séu til eftirbreytni og ég held að vinnubrögðin séu ágæt. Ég held að það sé mjög mikilvægt að horfa á ferðaþjónustuna í heild og huga að þróun hennar um leið og við finnum leiðir til að fá auknar tekjur af erlendum ferðamönnum og að þessi iðnaður, sem er svo stórt hlutfall af atvinnuvegum okkar, skili sínu til samfélagsins og vaxi án ívilnana til lengri tíma. Við höfum átt góða fundi í fjármálaráðuneytinu með hagsmunaaðilum ferðaþjónustunnar og skipst á upplýsingum. Greiningaraðilar frá háskólanum og aðilar frá KPMG hafa farið yfir málin, út frá sínu sjónarhorninu hvor í sumum tilfellum, en báðir segja: Aðgerðin mun hafa áhrif á fjölgun ferðamanna. Ferðamönnum mun samt sem áður halda áfram að fjölga, þeim mun bara ekki fjölga eins mikið og undanfarin tvö ár. Það eru varúðarsjónarmiðin.

Á þessum fundum hafa komið sterk rök fram, ekki þau að allir hótel- og gistihúsaeigendur séu búnir að selja öll herbergin fyrir árið 2013 því að það eru þeir ekki búnir að gera, heldur þau að aðlögunartíminn fyrir þessar breytingar sé of stuttur. Mér finnst sjálfri þetta vera sanngjarnt sjónarmið og vil að þetta verði skoðað sérstaklega. Ef þessi tími verður færður til, kannski til haustsins, segjum það, mun það þýða eitthvert tekjutap en nefndin á eftir að fara yfir það. Ef við færum tímann til 1. september mundi það þýða tekjutap miðað við fjárlögin upp á 1,5 milljarða, (Forseti hringir.) sem annaðhvort þyrfti að dekka með auknum tekjum sem kæmu inn seinni part ársins, eða þá með mínus, en við megum vera bjartsýn á að tekjuaukningin verði meiri við nýja hagspá.