141. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2012.

skipulag sérstakrar umræðu.

[16:19]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Ég kem hér bara til að segja við virðulegan forseta að ég er hv. þingmanni algjörlega sammála. Ég tel mjög mikilvægt að afmarka umræðuna með sérstökum hætti. Ráðherrar þurfa að gera sér far um að reyna að svara öllum spurningum. Sömuleiðis þurfa þeir hv. þingmenn sem varpa spurningum fram að kunna sér hóf.

Ef þingmönnum er ákaflega mál og þurfa að koma mörgum spurningum til ráðherra vil ég rifja upp það sem ég hef sagt áður. Ég er þeirrar skoðunar að mjög farsælt væri fyrir störf þingsins að hér væri á hverjum einasta degi óundirbúinn fyrirspurnatími gagnvart ráðherrum þannig að þingmenn gætu spurt þá og svalað upplýsingafýsn sinni. Mér finnst það sjálfsagt mál. Hins vegar verð ég að segja eitt um sérstakar umræður: Það er ekki hægt að taka af ráðherrum þann rétt, þegar þeir eru beðnir um pólitíska umræðu, að koma með sína sýn á málið (Forseti hringir.) út frá eigin sjónarhorni. Það er ekki hægt.