141. löggjafarþing — 29. fundur,  5. nóv. 2012.

minning Jóhanns Einvarðssonar.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Nú verður minnst látins fyrrverandi alþingismanns.

Jóhann Einvarðsson, fyrrverandi alþingismaður og framkvæmdastjóri, lést sl. laugardagskvöld, 3. nóvember, á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík. Hann var 74 ára að aldri.

Jóhann Sigurður Einvarðsson var fæddur í Reykjavík 10. ágúst 1938. Foreldrar hans voru hjónin Einvarður Hallvarðsson, starfsmannastjóri Landsbanka Íslands, og Vigdís Jóhannsdóttir húsmóðir.

Að loknu prófi við Samvinnuskólann árið 1958 hóf Jóhann störf í fjármálaráðuneytinu og starfaði þar þangað til hann var ráðinn bæjarstjóri á Ísafirði árið 1966, aðeins 28 ára gamall. Að loknu einu kjörtímabili þar var hann bæjarstjóri í Keflavík 1970–1980.

Við alþingiskosningarnar í desember 1979 var Jóhann valinn, sem vinsæll bæjarstjóri, til að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi og vann ágætan sigur. Sat hann á Alþingi það kjörtímabil en tapaði þingsæti sínu í kosningunum 1983. Fjórum árum síðar var hann kjörinn á ný til þings, þá í 2. sæti listans sem var undir forustu formanns flokksins. Flokkurinn naut þá meðbyrs í kjördæminu en jafnframt jók breytt kosningakerfi hlut Reyknesinga á Alþingi. Jóhann náði ekki kjöri 1991, en var varaþingmaður. Þegar Steingrímur Hermannsson sagði af sér þingmennsku í apríllok 1994 tók Jóhann sæti hans og sat fram að þingkosningunum 1995. Hann sat alls á 11 þingum.

Meðan Jóhann var utan þings 1983–1987 var hann aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. Eftir að þingmennsku hans lauk var hann framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurnesja og Heilsugæslustöðvar Suðurnesja til loka starfsferils síns.

Á Alþingi fékkst Jóhann einkum við sveitarstjórnarmál og atvinnumál en var einnig formaður utanríkismálanefndar um tíma. Hann tók þátt í alþjóðastarfi þingmanna, mest í þingmannasamtökum NATO.

Jóhann var félagslyndur maður og valdist til stjórnarstarfa í ýmsum samtökum, ekki hvað síst í samtökum sveitarfélaga og fyrirtækja á þeirra vegum. Þá var hann enn fremur í forustu samtaka handknattleiksmanna um nokkurra ára skeið. Árin 1985–1987 sat hann í bankaráði Útvegsbanka Íslands.

Jóhann Einvarðsson var margreyndur maður er hann settist á þing, rösklega fertugur að aldri, bæði úr Stjórnarráðinu og af 14 ára starfi sem bæjarstjóri, á svo ólíkum stöðum sem Ísafirði og Keflavík. Hann sinnti kjördæmi sínu vel. Jóhann var samviskusamur maður og vandvirkur í hvívetna, og lipurmenni og prúðmenni í samstarfi. Hann var hógvær í málflutningi, maður sátta og samkomulags. Fyrir þessa eðliskosti, ekki síður en fyrir stefnumál sín, naut hann trausts og trúnaðar flokksmanna sinna og kjósenda.

Ég bið þingheim að minnast Jóhanns Einvarðssonar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]