141. löggjafarþing — 49. fundur,  8. des. 2012.

Íslandsstofa.

500. mál
[12:35]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pétri H. Blöndal fyrir góð orð um starfsemi Íslandsstofu. Ég er honum sammála um það. Það sem skiptir hins vegar máli varðandi þær athugasemdir sem hv. þingmaður kom með er að atvinnulífið sjálft vill hafa fyrirkomulagið svona. Það er ekki ríkisvaldið sem er að troða þessu upp á atvinnulífið heldur er frumvarpið gert í mjög góðri sátt og að frumkvæði Samtaka atvinnulífsins.