141. löggjafarþing — 60. fundur,  21. des. 2012.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

468. mál
[20:06]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Hér er verið að framlengja endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vinnu á vinnustað og ég get ekki annað en samþykkt að það sé framlengt að fólk fái endurgreiðslu af vinnu og þjónustu sem hefur verið veitt á vinnustað.