141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá 11. þm. Reykv. n., Merði Árnasyni, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 3. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Pétur Georg Markan. 1. og 2. varaþingmaður í kjördæminu hafa boðað forföll. Kjörbréf Péturs Georgs Markans hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Pétur Georg Markan, 11. þm. Reykv. n., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]