uppbygging stóriðju í Helguvík.
Virðulegi forseti. Tvö af þeim fjölmörgu málum sem eru á dagskrá í dag eru mál nr. 30 og 31 sem snúa að innviðafjárfestingum á Bakka fyrir norðan, við Húsavík. Það hefur verið upplýst að síðastliðin ár hefur verið unnið að því að skoða innviðafjárfestingar fyrir norðan og samhliða því að skoða framkvæmdir við Helguvík, hafnarframkvæmdir og vegaframkvæmdir, og aðkomu ríkisvaldsins að þeim. Þegar frumvörpin um Bakka komu fram var upplýst að ríkisstjórnin hefði samþykkt að ganga til viðræðna við Reykjanesbæ á grundvelli samkomulags vegna kísilversins við Bakka.
Ég vil spyrja hæstv. innanríkisráðherra hvað þeim málum líður sem snúa að innanríkisráðuneytinu, væntanlega hafnargerð og vegagerð, og hvort ekki sé öruggt að vænta sé frumvarpa um þau fyrir þinglok eins og þingmenn og hæstv. ráðherrar Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ hafa væntingar um. Er að vænta frumvarpa frá hæstv. innanríkisráðherra hvað þessi atriði varðar fyrir þinglok?