uppbygging stóriðju í Helguvík.
Virðulegi forseti. Svo ég fái það alveg á hreint þá er ekki að vænta sérstakra frumvarpa eða breytinga á lögum varðandi Helguvík á þessu þingi. Þá er það staðfest frá hæstv. ráðherra.
Varðandi frumvarp til hafnalaga sem fyrir liggur vil ég spyrja hvort hæstv. ráðherra hafi í hyggju að gera á því breytingar til að koma til móts við þau sjónarmið og þær framkvæmdir sem fara fram á Suðurnesjum. Mér þykir skrýtið að öðrum megin í ríkisstjórninni sé því haldið fram að búið sé að vinna að þessum tveimur verkefnum samhliða í heilt ár og síðan koma frumvörp fram á síðustu dögum þingsins hvað aðra framkvæmdina varðar en svo virðist sem engin alvara hafi fylgt því að skoða málið vegna framkvæmda í Helguvík og koma til móts við þær. (Forseti hringir.) Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé réttur skilningur hjá mér.
Síðan vil ég spyrja hann hvort hann sé sáttur við að frumvörpin varðandi Bakka komi ekki frá hæstv. innanríkisráðherra, en það vakti athygli, og hvort hann sé sáttur við að ákvarðanir og tillögugerð (Forseti hringir.) vegna þeirra framkvæmda er lúta að málefnum í innanríkisráðuneytinu komi annars staðar frá.