141. löggjafarþing — 107. fundur, 19. mars 2013.
störf þingsins.
Ég vil þakka hv. þm. Þuríði Backman fyrir hennar góðu störf á Alþingi og gott samstarf. Við höfum átt samleið frá því að hún tók sæti á þingi 1999. Þar var ég fyrir þá og hef starfað með henni og átt mjög gott samstarf víða og einnig áður en hún kom inn á þing. Ég þakka henni kærlega fyrir farsæl störf og óska henni alls góðs að loknu pólitísku þingmannsstarfi.