141. löggjafarþing — 112. fundur,  27. mars 2013.

fjármálafyrirtæki.

501. mál
[22:40]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Níu af næstu tíu málum á dagskránni eru afgreidd af hv. efnahags- og viðskiptanefnd. Það er óþarfi að eyða tíma þingmanna í atkvæðaskýringar um þau, enda eins og oft áður fremur góð samstaða um afgreiðslu þeirra úr nefndinni. Ég þakka hv. nefndarmönnum gott samstarf á kjörtímabilinu.