stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir sex mínútur en í þeirri þriðju fimm mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Píratar.
Fyrir Framsóknarflokk talar hæstv. forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, í fyrstu umferð, í annarri umferð félags- og húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttir, og í þriðju umferð hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvest., Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvest., í annarri umferð og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri umferð Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvest., og í þriðju umferð Bjarkey Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðaust.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða í fyrstu umferð fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, í annarri umferð Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þm. Suðvest., og í þriðju umferð Valgerður Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðaust.
Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvest., í annarri umferð Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykv. s.
Fyrir Pírata talar Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykv. s., í fyrstu og þriðju umferð, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n., talar í fyrstu og annarri umferð.