142. löggjafarþing — 6. fundur,  14. júní 2013.

launakjör kandídata á Landspítalanum.

[10:52]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Herra forseti. Mér fannst svör hæstv. heilbrigðisráðherra frekar loðin verð ég að segja. Við vitum alveg hvað forstjóri Landspítalans hefur sagt um málið og við vitum afstöðu hans. Ég kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við eins og læknaráð Landspítalans hefur beðið um og skerist í leikinn af því að ekki er vanþörf á.