143. löggjafarþing — 83. fundur, 27. mars 2014.
skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um Íbúðalánasjóð o.fl.
474. mál
Forseti hefur ákveðið á grundvelli 2. mgr. 67. gr. þingskapa að framsögumenn álitanna hafi rýmri tíma en þingsköp segja, þ.e. 30 mínútur í stað 20 mínútna, en að öðru leyti fari ræðutími eftir ákvæðum þingskapa um umræður um skýrslur, þ.e. þingmenn hafi tíu mínútur í fyrra sinn en fimm mínútur í seinna sinn.