143. löggjafarþing — 124. fundur, 18. júní 2014.
frestun verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands gegn Icelandair.
616. mál
Virðulegi forseti. Ég ítreka það sem ég hef sagt hér áður án þess að lengja þetta frekar, að ég ítrekaði það á fundinum að þetta fyrirkomulag yrði á. Því var hvorki andmælt né gerðar athugasemdir við það. Ég stóð við það sem ég sagði og ég hef engu við það að bæta.