144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[12:39]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það mál sem er á dagskrá þingfundarins er fyrsta mál þessa þingvetrar og heitir fjárlagafrumvarp fyrir árið 2015. Hér var borin upp sú spurning við hæstv. forsætisráðherra hvort hann styddi það fjárlagafrumvarp.

Í viðbragði við þeirri spurningu hvort forsætisráðherra Íslands styðji fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra heyri ég ekki betur en hann leggi til og þyki eðlilegast að sá þingmaður sem hér stendur verði víttur.