Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri.
Virðulegi forseti. Hvað varðar birtingarmynd pólitísks vilja hér í þessum sal kemur hann mjög skýrt fram í fjárlagafrumvarpi því sem varð að lögum í desember sl. Þar eru skólanum áætlaðir og veittir fjármunir til reksturs og það er krafa um að skólinn haldi sig innan þeirra fjárveitinga, ásamt því síðan að sú eðla krafa er gerð til þessarar stofnunar, eins og annarra stofnana sem hafa lent í því að fara fram úr, að sett verði upp ferli þar sem reynt verði að greiða eitthvað inn á þann halla sem hefur myndast.
Þetta eru eðlileg vinnubrögð og eru óumflýjanleg. Ríkisendurskoðun hefur fundið mjög að því að ekki hefur verið brugðist við því annars vegar hvað Alþingi hefur ætlað skólanum á fjárlögum og hins vegar hver reksturinn hefur verið. Það er auðvitað vilji Alþingis sem ræður, það er Alþingi sem ákveður að þetta séu fjármunirnir. Úr því að spurt var um pólitískan vilja þá birtist hann með þessum hætti.
Þetta er staðan. Ég ítreka aftur á móti að ég hef ekki fallið frá þeirri skoðun að það er betra fyrir þessa (Forseti hringir.) menntastofnun að sameinast Háskóla Íslands og þannig verði til öflug vísindastofnun á sviði landbúnaðarvísinda.