144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

raforkustrengur til Evrópu.

[10:56]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég get vel tekið undir með hv. þingmanni og fullvissa hana um að það er akkúrat það sem við erum að gera núna. Við erum að þoka þessu máli áfram þannig að við öflum okkur þeirra nauðsynlegu upplýsinga sem við þurfum að hafa áður en tekin verður ákvörðun um hvort haldið skuli áfram með þetta verkefni eða ekki.

Ég get fullvissað þingmanninn um að þau verkefni sem hafa verið skilgreind á verksviði bæði ráðuneytisins og undirstofnana þess eru þegar farin af stað. Hin eru í undirbúningi og munu verða boðin út þegar þeirri vinnu er lokið.