144. löggjafarþing — 49. fundur, 15. des. 2014.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar, Helga Hjörvar, um að 4. þm. Suðvest., Árni Páll Árnason, geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Margrét Gauja Magnúsdóttir. 1. varamaður í kjördæminu hefur boðað forföll.
Margrét Gauja Magnúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.