144. löggjafarþing — 53. fundur,  20. jan. 2015.

varamenn taka þingsæti.

[13:39]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Ragnheiði Ríkharðsdóttur, um að Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Sigurður Örn Ágústsson. Fyrsti varamaður í kjördæminu hefur boðað forföll. Kjörbréf Sigurðar Arnar Ágústssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Sigurður Örn Ágústsson, 4. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]