afnám hafta.
Virðulegur forseti. Mér virðist hafa tekist að koma hæstv. forsætisráðherra úr jafnvægi með spurningu minni. Hann fær smátíma til að róa sig og ég ætla að útskýra mál mitt enn frekar. Ekki er deilt um að hér myndist svokallað svigrúm. Afnám hafta snýst um að létta af ákveðnum þrýstingi í fjármagnsflutningum milli landa og það er ákaflega líklegt að ef á verður lagður útgönguskattur á fjármagnsflutninga úr íslensku hagkerfi verði lokaniðurstaðan sú að nokkur hundruð milljarðar af íslenskum krónum safnist fyrir í Seðlabanka Íslands. Ég hef heyrt mjög veigamiklar röksemdir fyrir því að þær krónur sem safnast þar upp megi ekki fara að nota á Íslandi í alls konar verkefni vegna þess að það væri í raun og veru það sama og að prenta íslenskar krónur. Allir vita hvaða hagfræðilegu áhrif það hefði, það hefði einfaldlega í för með sér verðbólgu, það étur sjálft sig upp. Er hæstv. forsætisráðherra ósammála þeirri greiningu? Svo hef ég líka heyrt því fleygt að það mundi (Forseti hringir.) vera erfitt að réttlæta það fyrir dómstólum ef við settum á slíkan útgönguskatt ef hann væri matreiddur sem fjáröflun fyrir ríkissjóð. (Forseti hringir.) Þessar tvær röksemdir hef ég heyrt. Er hæstv. forsætisráðherra búinn að jafna sig og getur hann svarað því hvort hann hafi skilning á þessum röksemdafærslum?