144. löggjafarþing — 72. fundur,  27. feb. 2015.

lyklafrumvarp.

[10:37]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég spurði hæstv. innanríkisráðherra í gær um lyklafrumvarpið í tvígang og fékk engin svör. Ég rifjaði upp andsvör hennar við ráðherra á síðasta kjörtímabili um lyklafrumvarpið og vil nú bæta við einni yfirlýsingu innanríkisráðherra á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins í mars 2012 um lyklafrumvarpið.

Á dagskrá síðar í dag er frumvarp um nauðungarsölu og ég vil þess vegna ítreka spurningu mína til innanríkisráðherra: Ætlar hún að leggja lyklafrumvarpið fram á Alþingi? Nú má hafa skilning á því að ráðherrann hefur skamma hríð setið í embætti, en hæstv. ráðherra er lögfræðingur, þekkir lyklamálið, var þingmaður, ræddi málið hér og gaf út yfirlýsingar um það sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn lofuðu í kosningabaráttunni að lögfesta lyklafrumvarpið. Margt fólk sem á í miklum erfiðleikum bindur vonir við að það verði gert. Ég kalla eftir því að hæstv. ráðherra svari því einfaldlega núna á miðju kjörtímabili hvort efna eigi loforðið eða ekki.

Ég á enga kröfu á hæstv. ráðherra um þetta efni, hún lofaði mér þessu ekki, en þeir sem eru í þeirri stöðu að þurfa á þessu frumvarpi að halda, og flokkur hennar og samstarfsflokkurinn lofuðu þessu fyrir tveimur árum, eiga heimtingu á að hún taki af tvímæli um það hvort hún ætli að flytja málið eða ekki.

Það er kannski líka sérstaklega ástæða til að spyrja um þetta eftir forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag. Nú eru auðvitað vaxandi áhyggjur af því að við afnám gjaldeyrishafta geti skuldir heimilanna aftur rokið upp úr öllu valdi. Þá væri það auðvitað mikilvæg trygging fyrir heimilin í landinu ef búið væri að ganga frá því í lög að sama staða kæmi ekki upp aftur, sem ég tel að hafi verið mistök af okkur hér á Alþingi, að fólk yfir höfuð geti lent í þeirri stöðu að vera yfirskuldsett með heimili sín.