144. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2015.

lyklafrumvarp.

[15:25]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Hæstv. innanríkisráðherra, sem er hér í salnum, benti mér á að hv. þingmaður hefði misskilið svar sitt. Það kom mér ekki á óvart, ég tók strax eftir því að hann var á algjörum villigötum miðað við það sem hæstv. innanríkisráðherra hafði svarað á sínum tíma. Það er til að mynda alrangt hjá hv. þingmanni að það hafi ekki verið stefna þessarar ríkisstjórnar að vinna að slíku frumvarpi því að samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar, um aðgerðir vegna skuldavandans, fyrsta þingsályktunartillagan sem lögð var fram hér á nýju þingi, var velferðar- og innanríkisráðuneytinu falið að kanna hvernig gera mætti eigendum yfirskuldsettra íbúða kleift að losna án gjaldþrots undan eftirstöðvum sem veðið sjálft stendur ekki undir. — Þetta var bein tilvitnun, með leyfi virðulegs forseta.

Þetta var svo tekið til vinnslu í samræmi við þessa lýsingu enda þingsályktunartillagan samþykkt hér, ef ég man rétt, af öllum þingmönnum, var það ekki? (Gripið fram í: Nei.) — Nei, nei, því miður, virðulegur forseti, það var ekki svo gott, það voru ekki allir sem sáu kosti þessa. Hv. þingmaður getur til dæmis rifjað það upp hvort hann studdi þetta á sínum tíma. Þetta var unnið á vegum þessara ráðuneyta og eins og hv. þingmaður veit, því að þetta hefur verið til umræðu hér áður, gerði réttarfarsnefnd athugasemdir við þær tillögur sem þar var lagt upp með og taldi þær ekki standast stjórnarskrá, þ.e. að gera kröfur á lánastofnanir afturvirkt.

Við þessu var brugðist með nýrri leið og nú er frumvarp til kynningar á heimasíðu innanríkisráðuneytisins og því rétt, sem hæstv. innanríkisráðherra sagði hér fyrir fáeinum dögum, það er ekki verið að vinna í málinu því að fyrir liggur frumvarp sem gengur út á það að kröfur sem ekki greiðast við nauðungarsölu fasteignar og falla utan markaðsvirðis fasteignar fyrnist á tveimur árum. (Forseti hringir.) Með þessari leið má komast hjá þessum vanda sem réttarfarsnefnd benti á um stjórnarskrárbrot.