144. löggjafarþing — 77. fundur,  4. mars 2015.

ósk um umræðu um LÍN.

[15:38]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti getur alls ekki tryggt að hæstv. menntamálaráðherra verði hér í fyrramálið. Forseti hefur gætt að því og komist að því að hæstv. ráðherra hefur fjarvistarleyfi í dag. Forseta er ekki ljóst hvenær hæstv. ráðherra verður til staðar að nýju í þinginu, en eins og forseti nefndi og tók strax vel í mun hann koma þessum skilaboðum til hæstv. ráðherra. Svo sjáum við hvað setur síðar í dag.