144. löggjafarþing — 84. fundur, 24. mars 2015.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá 10. þm. Reykv. n., Helga Hrafni Gunnarssyni, um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Halldóra Mogensen.
Halldóra Mogensen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.