lagning sæstrengs til Evrópu.
Virðulegi forseti. Við verðum að vera með á hreinu hvað við viljum. En er það ekki örugglega sameiginlegur skilningur hjá mér og hæstv. ráðherra að við viljum fá sem hæst verð fyrir orkuna? Erum við ekki örugglega á sömu blaðsíðu þar? Ef ekki, þá þurfum við að taka mjög ítarlega umræðu um það. Af hverju ætti ráðherra t.d. ekki að vilja það?
Ef orkumarkaðurinn opnast á Íslandi þá stjórna auðvitað ekki stjórnmálamenn og ráðherrar honum með annarri hendinni og reisa stóriðjur í kjördæmum eins og þeim hentar. Það hefur verið haldinn einn fundur með fyrrverandi orkumálaráðherra Breta og ég veit alveg af þeim fundi, ég spurði um hann fyrir átta mánuðum, þá fékk ég nákvæmlega sömu svör.
Heyri ég rétt að hæstv. ráðherra hafi ekki fundað aftur á þessu tímabili við bresk stjórnvöld út af (Forseti hringir.) þessu gríðarlega mikilvæga hagsmunamáli fyrir íslensku þjóðina?