144. löggjafarþing — 105. fundur, 12. maí 2015.
um fundarstjórn.
Forseti vill upplýsa áður en lengra er haldið með umræður um fundarstjórn forseta og menn hefja mál sitt öðru sinni undir þeim dagskrárlið að forseti hefur ástæðu til að ætla að af fundi forseta með formönnum þingflokka geti orðið eitthvað síðar í kvöld, þó ekki alveg á næstunni þar sem … (Gripið fram í: Fundur hefur þegar verið boðaður klukkan hálfsjö.) Nú þegar er komið fundarboð klukkan hálfsjö þannig að það er rétt að það liggi fyrir í þessari umræðu.