ummæli forsætisráðherra um rammaáætlun.
Hæstv. forseti. Ég hef velt málinu mikið fyrir mér eftir fyrirspurnatímann áðan sem hæstv. forsætisráðherra notaði til að breyta málinu og gagnrýna okkur á sama tíma fyrir að ræða þetta undir liðnum um fundarstjórn forseta. Hafi hæstv. forseti einhvern tímann haft verulega ástæðu til að taka þetta mál af dagskrá, fá einhverja umræðu um það utan þingsalar og koma öðrum málum á dagskrá er það eftir svör hæstv. forsætisráðherra. Hann var með tvenn skilaboð áðan um mál sem eru mjög hátt í umræðunni í dag og óskaði eftir rökræðu. Hann boðar breytingar á skattkerfinu og endanlegan fjölda skattþrepa. Erum við að ræða það í dag? Erum við að ræða einhverjar hugmyndir um það á hvaða vegferð við erum með það? Það má skilja hann þannig að þessi tillaga (Forseti hringir.) um virkjunarkosti sé innlegg í (Forseti hringir.) kjaraumræðu. Eigum við ekkert að fá að ræða það ef ASÍ er að gera þetta að skilyrði? Það er það sem hæstv. forsætisráðherra var að upplýsa okkur um. Ég held, hæstv. forseti, (Forseti hringir.) að það sé mikilvægt að þessi mál verði tekin á dagskrá (Forseti hringir.) sem dagskrárliður um kjaramál þar sem forsætisráðherra situr fyrir svörum.