ummæli forsætisráðherra um rammaáætlun.
Forseti. Ef þetta væri ekki grafalvarlegt mál mundi maður kalla það hálfgerðan skrípaleik sem hérna fer fram, sérstaklega af því að það er ekki alveg ljóst hvaða tillögu við erum ræða. Það væri fróðlegt að vita til dæmis hvort forseta hafi verið tilkynnt fyrr í dag um þá óformlegu breytingartillögu sem hæstv. forsætisráðherra minntist á. Til hvers vill stjórnarmeirihlutinn halda áfram með þessa umræðu ef það er ekki alveg ljóst hvað á að tala um? Hvenær á að taka afstöðu til þessa, hvenær kemur þessi breytingartillaga fram? Vissi forseti þingsins af henni áður en hæstv. forsætisráðherra tilkynnti um hana sisona í framhjáhlaupi í ræðustól áðan? Þetta er náttúrlega algjörlega með eindæmum.