ummæli forsætisráðherra um rammaáætlun.
Virðulegur forseti. Ég iðrast mjög yfir því að hafa komið hér upp og lýst mig ósáttan við störf þingsins undir liðnum fundarstjórn forseta. Ég sé núna að að sjálfsögðu á maður að samþykkja það sem lagt er fram af stjórnarmeirihlutanum og sitja á óánægju sinni. Þegar þetta hefur síðan verið samþykkt og farið í gegnum umræðuna og atkvæðagreiðslu skulum við halda sáttafund.
Er þetta ekki ræðan sem hæstv. forseti vill heyra? Á maður ekki að segja líka núna: Mikil er náð hæstv. forsætisráðherra að hafa ákveðið að hætta við Hagavatnsvirkjun? Hún var vissulega umdeildasti kosturinn sem átti að færa í nýtingarflokk en hinir eru það líka. Þetta er engin sáttatillaga.
Ég ætla að tala um fundarstjórn forseta vegna þess að mér finnst það vera að teiknast upp að hæstv. forseti sem fer með dagskrárvaldið sé að misbeita þessu valdi. Það fer í taugarnar á mér, (Forseti hringir.) ég ætla að mótmæla því og ég ætla að halda áfram að mótmæla því meðan hann gerir það.