144. löggjafarþing — 107. fundur, 15. maí 2015.
ummæli forsætisráðherra um rammaáætlun.
Forseti hefur eingöngu vakið athygli á því að það er hans skoðun að það sé eðlilegast að þegar boðuð er breytingartillaga sé hún kynnt fyrir þinginu eða lögð einfaldlega fram fyrir það. Það var ekki annað sem forseta varð á að segja úr forsetastóli.