144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

Varamenn taka þingsæti.

[13:51]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá ritara þingflokks Framsóknarflokksins um að Gunnar Bragi Sveinsson, 1. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í gær tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson. Þessi skipti hafa verið tilkynnt á vef Alþingis.

Sigurður Páll Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.