144. löggjafarþing — 109. fundur, 20. maí 2015.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Nei.) (Gripið fram í: Já.) (Gripið fram í: Já, atkvæðagreiðsla.) Forseti heyrir bæði nei og já. (SSv: Já, það á að greiða atkvæði um þessa tillögu.) Nú fer fram atkvæðagreiðsla um tillöguna.