145. löggjafarþing — 6. fundur,  15. sept. 2015.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016.

2. mál
[19:08]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get auðvitað tekið undir margt sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson sagði og ég heyrði ekki betur en hann væri í aðalatriðum mjög sáttur við þetta fjárlagafrumvarp og hældi hér fjármálaráðherra á hvert reipi (ÖS: Nei.) eða svo gott sem. En eitt var samt sem ég tók eftir þegar hann vitnaði í aðila vinnumarkaðarins sem töldu ekki ráðlegt að lækka skatta. Hafa menn þá ekki gleymt því að það var í raun og veru alger forsenda fyrir því að samningar náðust að skattar á millitekjufólk yrðu lækkaðir? Ég held að aðilar vinnumarkaðarins ættu að líta í eigin barm sem fóru fram á eða þvinguðu fram launahækkanir sem ekki er innstæða fyrir sem mun gera þeirri ríkisstjórn sem nú er við völd mjög erfitt á næstu missirum og það er auðvitað stærstu áhyggjuefni okkar. Menn fara langt fram úr því sem þjóðfélagið stendur undir og hverjar eru afleiðingarnar? Þær eru auðvitað hækkandi vextir sem rýra kjör margra, það er aukin verðbólga sem rýrir kjör margra.

Það hefði verið nær að lækka skattana aðeins meira og hafa launahækkanir miklu minni því það hefði verið kjarabót til framtíðar. En varðandi skattana, þegar við veltum fyrir okkur hvað við eigum að taka mikið, þá þurfum við auðvitað að skoða stöðuna. Og hvað þarf til til að fá fyrirtæki til að fjárfesta? Það er stöðugt skattumhverfi, engir duttlungar, ekki of háir skattar og helst lægri, sérstaklega þegar það voru litlar fjárfestingar þegar skattar voru hækkaðir.