beiting Dyflinnarreglugerðarinnar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mér finnst fremur leitt að heyra að ekki komi til greina að taka Dyflinnarreglugerðina úr sambandi því að að mínu mati eru aðstæðurnar sem nú eru uppi með þeim hætti að mér fyndist full ástæða til að gera það.
Auðvitað þarf að halda utan um skráningu á fólki sem kemur, en mér finnst nú samt mikilvægara að veita fólki sem er að flýja úr mjög erfiðum aðstæðum skjól og það eigi að ganga fyrir en ekki skriffinnskan. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji að við núverandi aðstæður í Evrópu, þar sem til að mynda Þjóðverjar og ýmsir fleiri, Austurríkismenn, eru að taka við gríðarlegum fjölda — hvort henni finnist það vera í samræmi við anda reglugerðarinnar að senda fólk til baka vegna þess hversu margir flóttamenn eru komnir á meginland Evrópu.