þjóðarátak um læsi.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst fá að þakka fyrir þessa mjög góðu og áhugaverðu umræðu. Ég er af þeirri kynslóð sem hefur þurft að taka PISA-prófin nokkuð reglulega. Þau voru rosalega leiðinleg, það var kannski það sem stóð mest upp úr í öllum þessum prófatörnum sem við þurftum að fara í gegnum í 7., 8., 9. og 10. bekk. Það var hvað þessi próf voru rosalega löng og rosalega leiðinleg.
Ég er af þessari ADHD-kynslóð þar sem ofvirkni og athyglisbrestur er hægri, vinstri, alls staðar í skólakerfinu. Það þarf að höfða öðruvísi til fólks, það þýðir ekkert bara að henda í það einhverjum Íslendingasögum og ætlast til þess að þetta ágæta fólk — unglingar eru líka fólk og börn eru líka fólk — læri allt í einu að lesa eða læri að skilja það sem stendur. Mín reynsla var sú að Anna í Grænuhlíð væri ekkert sérstaklega skemmtileg bók.
Að lesa þarf að vera gaman. Það þýðir ekki að ætlast til þess að fólk lesi ef maður setur bók fyrir framan það. Það er svolítið liðin tíð, svolítið liðin námsleið. Fólk er nú í dag að lesa daginn út og daginn inn, við skrifumst rosalega mikið á, þ.e. á fésbók og Twitter og ég veit ekki hvað. Það að lesa sér til gagns hefur kannski svolítið breyst. Mig langar til að setja spurningarmerki við það hversu mikið er hægt að taka mark á svona PISA-könnunum sem eru bæði langar og leiðinlegar, að mínu mati og miðað við það hvað skólafélagar mínir sögðu; við ættum kannski að skoða hvernig lestrarnámi er háttað varðandi skemmtanagildi fyrir ungt fólk.