fjárþörf Landspítalans.
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp í umræður við hæstv. heilbrigðisráðherra vegna harðorðs pistils forstjóra Landspítalans varðandi fjárskort þar á bæ. Forstjórinn fer yfir það í pistli sínum að á fjárlögum yfirstandandi árs vanti 1.400 millj. kr. til viðhalds og nýframkvæmda, en eins og vitað er þá er húsnæðið mjög illa farið víða og mygla þar og í raun algjörlega óviðunandi starfsaðstæður. Þá fer forstjórinn yfir það að veita þurfi fé vegna sjálfkrafa aukningar í eftirspurn eftir þjónustu vegna hærri aldurs þjóðarinnar og bendir jafnframt á að sjúkratryggingar fái um 1% aukningu þrátt fyrir að þjónustan á Landspítalanum sé sérhæfð og lífsbjargandi meðferð sem hljóti að eiga að vera í forgangi. Landspítalinn fær sem sagt ekkert vegna þessarar magnaukningar, en það þyrfti að vera samkvæmt forstjóranum um 1,7% á ári. Þá er farið yfir ýmsa aðra liði, svo sem eins og launabætur og S-merkt lyf.
Við höfum mörg ítrekað þá skoðun okkar að auka verði fjárframlög til Landspítalans miðað við það fjárlagafrumvarp sem nú liggur fyrir enda er auðséð að sjúkrahúsið getur ekki sinnt lögbundnum skyldum sínum ef ekki kemur til aukins fjármagns.
Ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra: Eigum við von á fjármagni til viðhalds og nýframkvæmda vegna magnaukningar og til kjarabóta í 2. umr. fjárlaga til Landspítala Íslands?