145. löggjafarþing — 63. fundur, 19. jan. 2016.
framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 19. janúar 2016 kl. 13.30.
Gjört á Bessastöðum, 13. janúar 2016.
Ólafur Ragnar Grímsson.
___________________________
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingfunda á nýju ári.