145. löggjafarþing — 81. fundur, 29. feb. 2016.
rannsókn kjörbréfs.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Pírata um að Ásta Guðrún Helgadóttir, hv. 10. þm. Reykv. s., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Sigurbjörg Erla Egilsdóttir sæti á Alþingi en hún er 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu.
Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.