145. löggjafarþing — 97. fundur,  13. apr. 2016.

túlkun reglna um hagsmunaskráningu þingmanna.

[15:15]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti getur engu svarað um skráninguna því að eins og fram kom í svari forseta þegar þessi mál bar hér á góma var hv. þingmaður ekki á vegum Alþingis og Alþingi hafði þar af leiðandi engan atbeina að því með hvaða hætti hv. þingmaður var skráður. Því miður, forseti getur ekki upplýst þetta mál.