145. löggjafarþing — 107. fundur,  3. maí 2016.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1139, um fundahöld, frá Brynhildi Pétursdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1153, um áhrif verkefnisins höfuðstólslækkun fasteignalána á starfsemi ríkisskattstjóra, frá Svandísi Svavarsdóttur.