145. löggjafarþing — 118. fundur, 25. maí 2016.
dómstólar.
615. mál
Hæstv. forseti. Ég styð ekki þessa breytingartillögu. Ég tel breytingar á þessum ákvæðum núgildandi laga þurfa mun meiri og betri skoðunar við. Það er í kynningu núna á vef innanríkisráðuneytisins frumvarp um breytingar varðandi reglurnar um skipan dómara. Við munum fá það inn í þingið. Væntanlega verður það verkefni nýs þings eftir kosningar að fjalla um það. En það er ekki tímabært að greiða þessu atkvæði og styðja tillöguna.