framhaldsfundir Alþingis.
Háttvirtir alþingismenn. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra góðar óskir til okkar þingmanna og býð alþingismenn svo og starfsmenn þingsins velkomna til framhaldsfunda Alþingis að loknu sumarhléi.
Samkvæmt endurskoðaðri starfsáætlun frá því í maí sl. er gert ráð fyrir þingfundum í þessari lotu til 2. september. Þingstörf í vor tókust vel og voru Alþingi til sóma. Vil ég þakka þingmönnum fyrir það.
Ég bind vonir við að sá góði andi sem þá ríkti í störfum Alþingis megi haldast á þessum framhaldsfundum.