almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur tíu mínútur í fyrstu umferð, sex mínútur í annarri og sex mínútur í síðustu umferð.
Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.
Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Samfylkinguna tala Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk., í fyrstu umferð, í annarri Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þm. Reykv. s., og í þeirri þriðju Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvest.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal innanríkisráðherra í annarri umferð, en í þriðju umferð Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvest.
Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykv. s., í annarri, en í þriðju umferð Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðaust.
Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra, Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, í annarri og Karl Garðarsson, 8. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.
Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykv. s., í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykv. n., en í þriðju umferð Páll Valur Björnsson, 10. þm. Suðurk.
Ræðumenn Pírata eru Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þm. Reykv. s., í annarri, en í þriðju umferð Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n.