146. löggjafarþing — 41. fundur,  8. mars 2017.

orð fjármálaráðherra um Alþingi, dagskrá þingsins o.fl.

[15:20]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Forseti þakkar góða kveðju. Forseti hefur þann háttinn á, þegar allmargir þingmenn hafa óskað eftir því að ræða fundarstjórn forseta, að hlusta á það hvað þingmenn hafa fram að færa og íhuga það síðan við hvaða tilefni er rétt að blanda sér í þá umræðu. Og nú erum við komin að þeim tímapunkti.

Forseti hefur átt samtal við fjármálaráðherra og vakið athygli á þeim umræðum sem fóru fram hér í þingsal í gær og forseti bendir á að hæstv. ráðherra verður hér til andsvara í óundirbúnum fyrirspurnatíma á morgun.