146. löggjafarþing — 52. fundur,  3. apr. 2017.

varamaður tekur þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að 1. þm. Reykv. s., Brynjar Níelsson, geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Bessí Jóhannsdóttir.

Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi, árið 1986, og er boðin velkomin til starfa að nýju.