146. löggjafarþing — 53. fundur,  3. apr. 2017.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2017 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.

361. mál
[19:11]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mér líður hálfundarlega en ég ætla samt að koma hér upp. Þetta er mjög skrýtið andsvar því ég fæ ekki betur séð en kynning hæstv. forseta og þau skjöl sem ég finn með númerum séu í engu samræmi við það sem hæstv. utanríkisráðherra var að lesa hér. Ég verð bara að viðurkenna að ég er pínulítið óörugg um það hvort mér sé að skjöplast eða hvort það hafi orðið einhver ruglingur á skjölum og mig langar þess vegna að biðla til hæstv. forseta og hæstv. ráðherra um að leiðrétta mig ef ég fer með rangt mál, eða sjá annars til þess að við séum að ræða sömu málin hérna. Mér finnst eins og það hafi kannski orðið einhver ruglingur.