146. löggjafarþing — 56. fundur, 6. apr. 2017.
fjármálastefna 2017--2022.
66. mál
Frú forseti. Mig langar til að hvetja til dáða þá stjórnarliða hér inni sem er annt um velferðarkerfið á Íslandi að skrifa ekki upp á þetta plagg nýfrjálshyggjunnar sem er að ganga af okkur dauðum, samfélögum víðs vegar um heim. Þetta er ofboðslega stórt mál. Það skiptir máli að vera réttum megin við söguna.