146. löggjafarþing — 75. fundur, 30. maí 2017.
framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar.
378. mál
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. formanni nefndarinnar fyrir þetta svar sem ég tel að sé nokkuð skýrt, það sé vilji formannsins og meiri hlutans í nefndinni að meðan nýtt meðferðarheimili er byggt, hvernig sem það verður nú, eða tekið til rekstrar verði haldið áfram með það starf sem fyrir er á Háholti í Skagafirði.