146. löggjafarþing — 76. fundur,  31. maí 2017.

stefna og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017--2021.

434. mál
[14:12]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil einnig þakka nefndarmönnum fyrir vinnslu þessa máls. Þetta er mjög mikilvægt mál, en við náðum ekki að klára allt hvað varðar málefni fatlaðs fólks, en þetta voru fyrstu skrefin í að greiða þá leið. Ég vil líka þakka hv. velferðarnefnd fyrir að lofa að vinna áfram í þessum málum í sumar milli þinga svo við getum klárað réttilega það sem við þurfum að klára í málefnum fatlaðs fólks.