146. löggjafarþing — 79. fundur, 1. júní 2017.
rannsókn kjörbréfs.
Frú forseti. Eins og fram kom í máli hæstv. forseta hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd komið saman til að fara yfir kjörbréf Þorsteins V. Einarssonar sem barst frá landskjörstjórn. Var það samhljóða niðurstaða nefndarinnar að gera ekki athugasemdir við kjörbréfið.